Wednesday, June 23, 2010

Frumraun Villingsins

Mig hefur lengi dreymt um að geta bloggað nafnlaust. Blogga um misheppnaða daga, vel heppnaða daga, fólk eins og til dæmis Mömmuna, Pabbann, Doktorinn, fallegar konur og allt hitt, sem ekki má blogga um.

Ég fékk því Villingin innra með mér til þess að vera andlit þess bloggs í þeirri von að hann leyfi sér allt sem ég má ekki. Ég hef mikla trú á Villingnum og er þess hand viss að hann muni koma með fullkomna laus á Vandamálinu mikla.... alla vega sæmilega lausn....